22.01.2009 17:22:33 / hofi
Ég var að velta fyrir mér hvort eitthvert ykkar vissi hvernig þetta yrði í sumar þegar við fögnum 5. ára reunion? Mér finnst ég hafa heyrt að það séu alveg 3 dagar sem fara í þetta, er það rétt hjá mér? Ástæðan fyrir því að ég er að spá í þessu er að ég mun að öllum líkindum útskrifast frá HÍ 13. júní og er að velta fyrir mér hversu mikið ég þarf að flýta mér norður
Hvað segið þið gott annars? Mér finnst frekar leiðinlegt hvað þessi síða er dauð allaf hreint. Hvað eruð þið að gera í lífinu í dag?
Ég er í augnablikinu að fara að rembast við að skrifa lokaverkefni um upplifun kvenna af verkjameðferðum í fæðingu, svo þarf ég tækla tvenn verknám og tvö próf áður en ég get orðið hjúkrunarfræðingur. Þess á milli er ég að vinna á Vökudeildinni í 20% starfi.
Annars sjáumst við bara hress í sumar
Hófí
»
10.06.2008 15:40:09 / sigga eva
Ég er hérna með litla kútinn minn sofandi framan á mér og datt nú í hug að kíkja á þessa síðu þegar ég rakst á síðuna hjá 4f... sem er bara mjög lífleg miðað við okkar síðu!
En af mér er bara allt gott að frétta þessa dagana, eignaðist lítinn strák 5. maí, 14 merkur og 52 cm. Ég bý á Djúpavogi þetta sumarið, í fullu starfi við að hugsa um litla snúðinn minn, sem er ekki ennþá búinn að fá nafn. Við ætlum að skíra 4. júlí og bíðum ábyggilega með nafngiftina þanga til þá. Það er nú svolítið öðruvísi að vera heima að sinna svona kríli allan daginn, en mér finnst hann svo sætur að ég bara fæ ekki nóg

Við litla fjölskyldan ætlum síðan að flytja í bæinn í haust og ég ætla að fara aftur í hjúkrun í HÍ á annað ár. Árni minn er svolítið óákveðinn þannig það kemur bara í ljós hvað hann gerir.
Hérna er mynd að litla guttanum


En hvað er frétta af ykkur öllum?? Ég er að gera heiðarlega tilraun til að lífga uppá þessa síðu, megið endilega taka undir

Sigga Eva
»
21.09.2007 18:07:03 / aron
Sælt veri fólkið langaði bara að gera könnun á því hversu margir hafi áhuga á hitting t.d í keilu eða eitthvað álíka endilega kommenta gott fólk!!!
»
12.06.2007 20:37:48 / elisa
Innilega til hamingju með litlu snúlluna
Hlakka til að sjá
myndir 
kv Elísa
»
01.04.2007 12:48:50 / aron
Góður hittingur fór fram hjá elísu 28 mars og vonandi verður svona
lagað ekki bara einu sinni á ári. Að sjálfsögðu var slúðrað og
spilað hið hefðbundna Trivjal sem er fast við þessa viðburði. Arnar
og unnusti hans Palli voru illa sviknir og eru að mér skilst
enþá sárir eftir spilið.
»
26.03.2007 18:43:48 / elisa
Hæ Hittingur á miðvikudaginn 28.mars kl 19 stundvíslega takk

Hvassaleiti 14

Kv Elísa ps. látið vita ef þið komist ekki
»
22.03.2007 15:25:02 / elisa
Sæl veriði Ef að húsbóndinn leyfir, hvað segiði um hitting
miðvikudaginn 28.mars, heima hjá mér ??? Kv Elísa
»
13.03.2007 20:27:59 / aron
allvega ef maður er frá sigló....
þarf ekki að koma hittingur fljótlega áður en prófin byrja? Kanski
að maður bjóði ykkur heim til manns.... eða kanski of fjölmennt.
Spurning ef einhver býður fram húsnæði þá væri hægt að spjalla og
hafa pizzu og læti....
Einhver til?
Kv. Helgi sem er að fara í útskriftarferð til Egyptalands í vor
»
23.12.2006 18:35:18 / elisa
Kæru fyrrverandi bekkjarsystkin

Gleðileg jól og farsælt komandi
ár

Hafið það gott um jólin og svo vonandi verður partý á næsta
ári (Palli og Arnar

) kv Elísa
»
01.11.2006 11:37:41 / aron
Jæja gott fólk hvað finnst ykkur um hækkun á hraðaksturs
sektum?? Ég er hlinntur því að fólk fái sektir en finnst hinns
vegar að þær ættu að vera tekjutengdar, þá finnur fólk fyrir því
sama í hvaða klassa það er. Dæmi: Óli er 18ára námsmaður með 200
þús á mánuði í 4 mánuði á ári = 800þús á ári. Tekinn á
110km/klst sama og Eiddi Gauja sem er með 1000000kr
á dag allt árið (365) = 365000000kr var tekinn á. Hvor ætli haldi
áfram að keyra hratt??? ( tek það fram að þetta eru ekki réttar
tölur og reyndar ekki neinar persónur sem eru til í raun og
veru)
»
15.10.2006 15:40:39 / hofi
Leyfði mér að breyta síðunni aðeins, vonandi er það í lagi

Hófí
»
19.09.2006 18:48:17 / bara
Já, hann verður svona upp úr klukkan 18 fimmtudaginn 21.
september heim hjá mér, Kristnibraut 99 í Grafarholtinu, íbúð
404.
»
16.09.2006 11:35:15 / bara
...þá var ég að spá í hvort þið væruð ekki til í að breyta því sem
stendur í "Hvað er 4-T að gera í dag"? Var að breyta hjá mér. En
já, þeir sem ekki eru búnir að lesa færsluna hans Arons hérna fyrir
neðan vinsamlegast gerið það.
»
13.09.2006 11:25:43 / aron
»
13.03.2006 22:09:29 / aron
Það eru liðnir 3 mánuðir síðan var skrifað e-h hér þannig að ég
ákvað að ríða á vaðið og leggja nokkur orð í belg eins og
fréttaþula hjá RÚV mundi segja. Eru ekki örugglega allir á lífi sem
hafa aðgang að þessari síðu?? Annars er ég voða upptekinn þessa
dagana við að vinna eins og alltaf en ég hef þó ekki verið alltaf í
3 vinnum og líka í einu fagi í skóla. Ég hef ss náð nýjum hæðum í
vinnualkahólismanum hjá mér. Ég ss sé konuna enþá sjaldnar og
köttinn enþá síður og svo þegar ég hef frí heima þá þarf ég að
sinna skólanum uss. jæja ég vill fara að fá pistla frá fólki inn á
þessa síðu svona samantekt sl ár eða allavega 6 mán, maður nebblega
fær ekki mikla heildaryfirsýn með því að lesa bloggið hjá fólki,
allavega ekki hjá öllum. þannig að sá fyrsti sem les þetta skal sko
skrifa hérna stuttan en jafnframt yfirgripsgóðan pistil og hana nú
sagði hænan og lagðist á bakið.
»
Síður:
1 2 3 ...
5